halló, innri heimur

Halló heimur ·

Þetta er fyrsta útgáfa færslunnar.

Þessi bloggsíða verður pláss fyrir mig til að hugsa upphátt. Í þessari fyrstu færslu, sem enginn þarf eða ætti að lesa, ætla ég fyrst og fremst að athuga hvort allt virki sem skyldi.

Örstutt um bakbeinið

Vefsíðan er svokölluð einhleypa (e. one-shot) í Claude Code, þar sem ég bað um bloggsíðu sem nýtir sér md-skrár og git til að hýsa færslur og breytingar. Enn hefur þessari færslu ekkert verið breytt, enda frumrit. Þegar færslur breytast ætti breytingasagan að vera vistuð og sjáanleg.

Viðfangsefni

Ég lofa engu – bara því sem fyrir hellisvegginn ber.

Einn, tveir, og…

Þá er mér svosem ekkert að vanbúnaði. Eigum við að reyna þetta?