Þessi bloggsíða verður pláss fyrir mig til að hugsa upphátt. Í þessari fyrstu færslu, sem enginn þarf eða ætti að lesa, ætla ég fyrst og fremst að athuga hvort allt virki sem skyldi.
Örstutt um bakbeinið
Vefsíðan er svokölluð einhleypa (e. one-shot) í Claude Code, þar sem ég bað um bloggsíðu sem nýtir sér md-skrár og git til að hýsa færslur og breytingar. Þessi setning var til dæmis ekki í upphaflegu færslunni. Þegar færslur breytast ætti breytingasagan að vera vistuð og sjáanleg.1
Viðfangsefni
Ég lofa engu – bara því sem fyrir hellisvegginn ber.
Einn, tveir, og…
Þá er mér svosem ekkert að vanbúnaði. Eigum við að reyna þetta?
Ég hef núna snurfusað vefinn aðeins. Líklega er rétt að tala um sexhleypu, ef fyrsta skotið er fallbyssa og hin teygjubyssur. ↩︎